|
Norski skógarfræbankinn (Det norske Skogfrøverk)
hefur til fjölda ára haft ánægju af að
afgreiða trjáfræ til notkunar í íslenskri
skógrækt. Eftir að Skógrækt ríkisins
hætti innflutningi á fræi höfum við
orðið vör við aukinn áhuga hjá íslenskum
gróðrarstöðvum fyrir að notfæra sér
þjónustu okkar. Til að koma til móts við
aukna eftirspurn höfum við opnað netverslun á
íslensku. Eins og áður er hægt að senda
pantanir og fyrirspurnir á íslensku til okkar. Skriflegum
fyrirspurnum verður svarað á norsku en það
er möguleiki að fá svör á íslensku
með því að hringja í framkvæmdastjórann
(+47 99511266).
Skógarfræbankinn rekur ekki eingöngu fræverslun
heldur er eitt aðalhlutverkið að vera fræbanki
fyrir norsku skógræktina. Fræeiningar sem hörgull
er á verðum við að taka frá fyrir norska
markaðinn. Við munu samt alltaf reyna að afgreiða
þær pantanir sem berast frá íslenskum
gróðrarstöðvum. Skógarfræbankinn
hefur góð viðskiptasambönd um allan heim og
getur aðstoðað við að útvega fræ
í gegnum þessi sambönd. Við getum einnig skipulagt
fræsöfunun af norskum trjátegundum og kvæmum
sem ekki eru í vörulistanum. Vinsamlegast takið
eftir afgreiðslufrestum vegna pantana á fræi sem
ekki er til á lager.
Allar fræeiningar sem við afgreiðum eru prófaðar
í okkar eigin rannsóknarstofu eftir viðurkenndum
reglum frá ISTA (International Seed Testing Association)
og eru afgreiddar með fræskírteinum í samræmi
við O.E.C.D.-reglurnar. Reynslan sýnir að fræsalar
fylgja ekki alltaf ströngustu kröfum um frægæði.
Hátt vatnsinnihald og mikil óhreinindi í fræi
er algengt vandamál í fræviðskiptum. Allt
fræ sem Skógarfræbankinn flytur inn er þess
vegna spírunarprófað og meðhöndlað
eftir þörfum fyrir sölu. Þetta er gæðatrygging
fyrir gróðrarstöðvarnar og þær taka
þannig lágmarks áhættu við fræinnkaup.
|